Forsíða
  Kátir dagar 2010  
  Um Langanesbyggð  
  Stjórnsýsla  
  Fréttabréf  
  Stofnanir  
  Atvinnulíf og þjónusta  
  Almannavarnir  
  Áhugaverðar síður  
  Ljósmyndasafn  
  Póstþjónn  
  Um vefinn  
  Gestabók  
  English  
 

 

Umsóknir og eyðublöð

 
     
 

Umsókn um afslátt faste.sk.
Umsókn um niðurrif mannv.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um lóð
Umsókn um leikskólapláss
Ferða- og dvalarkostnað
Atvinnuumsókn
Húsaleigubætur
Flutningstilkynning innanlands
Flutningur til útlanda
Skráning í sambúð í þjóðskrá

 
 

 

Auglýsingar

 
     
 

 Eyrin til sölu
 UMFL 
 Slökkvilið Langanesb.
 Björgunarveitin Hafliði
 Langnesinga saga

 
 





Stjórnsýsla


Stafgöngunámskeið á Bakkafirði á laugardaginn

Nýverið var námsvísi Þekkingarnets Þingeyinga fyrir haustönn 2010 dreift í öll hús á starfssvæði Þekkingarnetsins. Í námsvísinum er lýst fjölbreyttu námsframboði og spennandi námskeiðahaldi. Þó nokkur námskeið verða haldin á Bakkafirði og Þórshöfn í haust. Einnig eru ýmis gagnleg og skemmtileg námskeið í nágrannabæjunum sem nú er orðið auðveldara að sækja en áður.
Fyrsta námskeiðið í Langanesbyggð er námskeið í stafgöngu sem verður haldið á Bakkafirði næsta laugardag, þann 11. september. Kennt verður frá kl. 10:30 - 12:00 og 13:00 - 14:30. Skráning í síma 464-5100 eða á netfangið hac@hac.is. Þátttökugjald er 6.500 kr.
Stafganga er góð leið til heilsubótar og hana er hægt að stunda hvar sem er og hvenær sem er óháð veðri, aldri, kyni eða líkamlegu ástandi. Hægt verður að fá stafi á staðnum. Leiðbeinandi er Sigurbjörg Árnadóttir. Mæting við Grunnskóla Bakkafjarðar.

 
 

Mikil umsvif á Þórshöfn

/images/img/HofninUmsvif5.sept.2010a.jpgÞað voru mikil umsvif, sól og hiti við höfnina á Þórshöfn í gær þegar meðfylgjandi mynd var tekin. Þrjú af fimm skipum Ísfélagsins lágu við bryggjuna, þau Júpíter, Guðmundur og Álsey. Búið var að vinna upp úr Júpíter, verið að skipa upp úr Álsey til vinnslu og fyrir lá að skipa upp úr Guðmundi frystum afurðum. Þarna var einnig línuveiðiskipi frá Rifi, Örvar sem hefur landað ferskum fiski á Þórshöfn undanfarið. Hluti aflans hefur farið vestur en hluti á markað á Þórshöfn. Erlent flutningaskip lá líka við bryggju að taka við frystum afurðum sem koma frá Raufarhöfn og Siglufirði auk Þórshafnar og sigla með þær til Póllands.
Að sögn Siggeirs Stefánssonarframleiðslustjóra hjá Ísfélaginu hefur verið unnið á vöktum allan sólarhringinn frá því upp úr miðjum júlí. "Þetta gengur bara vel" sagði Siggeir glaðbeittur í sólskininu um leið og hann sneri inn í hringiðu lyftara, flutningabíla, skipa og vinnandi fólks. Smábátarnir spegluðu sig sallarólegir í sléttum voginum þangað til óvæntur gestur vildi fá að vera með og ruglaði myndina. Sjáið fleiri myndir hér.

 
 

Göngur hefjast um helgina

Fyrstu göngur í Langanesbyggð hefjast nú um helgina þegar Fagraneslandið verður smalað. Hér má sjá gangnaseðilinn, sem veitir meiri upplýsingar um göngurnar.
Réttað verður í Ósrétt (Sauðanesrétt) fimmtudaginn 9. september og daginn eftir í Hallgilsstaðarétt eða föstudaginn 10. september.
Þriðjudaginn 14. september verður réttað í Tunguselsrétt.

 
 

Bókasafnið á Þórshöfn opnað

Bókasafnið á Þórshöfn opnar aftur eftir sumarfrí og fyrsti opnunardagur er mánudagurinn 6. september n.k. Þá verður opið frá kl. 18:00 - 20:00 en opnunartími er sá sami og áður; á mánudögum frá kl. 18:00 - 20:00 og á fimmtudögum frá kl. 17:00 - 19:00.
Safnagestir eru beðnir að skila sem fyrst bókum sem þeir fengu lánaðar fyrir sumarfrí. Sem fyrr er ekkert árgjald fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri og eru allir hvattir til að koma við í bókasafninu sem er vel staðsett á efri hæð íþróttamiðstöðvarinnar.
Bókavörður er Líney Sigurðardóttir.

 
 

Síðsumarganga Norðurslóðar

Ferðafélagið Norðurslóð var stofnað á síðasta ári og er félagssvæði þess frá Kelduhverfi í vestri að Bakkafirði í austri. Félagið hefur staðið fyrir nokkrum vel heppnuðum göngum á félagssvæðinu í sumar.  
Nú er komið að næstu göngu Ferðafélagsins Norðurslóðar. Hún verður farin næstkomandi laugardag, þann 4. september og litið á Jökulsá og Jökulsárgljúfur að austan. Gengið verður frá Vestaralandi í Öxarfirði upp með Jökulsá, að Gloppu. Mæting við Vestaraland kl. 13:00. 

Þetta verður létt og skemmtileg fjölskylduganga um fáfarnar slóðir í undurfallegu ævintýraumhverfi Jökulsárgljúfra. Fólk er beðið að taka með sér nesti og góða skó. Veðurspáin er afar góð og vonast er eftir góðri þátttöku.



 
 

Blakæfingar á Þórshöfn

Blakæfingar eru hafnar á Þórshöfn og verða þær á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:00 í vetur. Æfingarnar eru fyrir karla og konur og eru allir hjartanlega velkomnir að sögn áhugafólks um blak, sem stendur fyrir æfingunum.
Þetta er skemmtileg íþrótt og góð hreyfing í góðum félagsskap. Fólk er hvatt til að nýta hina ágætu aðstöðu í íþróttamiðstöðinni Veri, til dæmis með því að mæta á blakæfingu og slá í gegn.

 
 

Lausar stöður við Grunnskóla Þórshafnar

Skólaliða vantar við Grunnskóla Þórshafnar sem fyrst. Um tvö stöðugildi er að ræða, annað 60% og hitt 75%.
Helstu verkefni skólaliða eru þrif á skólahúsnæðinu og frímínútnagæsla.
Nánari upplýsingar veitir Arnfríður Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma 468-1164 / 899-3480 eða í tölvupósti á netfangið skolastjori@langanesbyggd.is.
Umsóknum skal skila á skrifstofu skólastjóra eða á netfangið skolastjori@langanesbyggd.is .

 
 

Hlé gert á æfingum í september

Starfsemi Ungmennafélags Langnesinga hefur verið lífleg í sumar, æfingar og mótaþátttaka í frjálsum og fótbolta í fullum gangi, góð þátttaka og góður árangur hjá félaginu. Nú verður tekið frí frá æfingum og íþróttastarfi í september. Áætlað er að birta æfingatöflu og byrja vetrarstarfið í byrjun október.

 
 


Fleiri fréttir

Viðburðadagatal

previous year prev month ágú2010 next month next year
 máþrmififölasu
302627282930311
312345678
329101112131415
3316171819202122
3423242526272829
35303112345

 

Fundargerðir

 
     
 

Fundarg. Langanesb. 2010 
Fundarg. Langanesb. 2009
Fundarg. Langanesb. 2008
Fundarg. Langanesb. 2007
Fundarg. Langsnesb. 2006
Fundarg. Þórshafnarhr.01-06
Fundarg. Skeggjast.hr.03-06

  

 
 

 

Gjaldskrár

 
     
 

Ál.ákvæði fasteignagjalda 2010
Gjaldskrá fyrir Þórsver
Gjaldskrá um geymslusvæði
Álagningarákvæði 2009, úr gildi
Ál. ákvæði gatnagerðar frá 1984
Langaneshafnir
Gatnagerðargjöld 2008
Gjaldskrá grunn- og leikskóla
Hundahald
Sláttur á lóðum
Leiguíbúðir

 
 

 

Góðgerðamál

 
     
  Magnús Sigurðsson
Davalarheimilið Naust
Violetu Kuczynska
Vala Örvarsdóttir
 
 


Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn Sími 468-1220 Bréfsími 468-1323 Kennitala: 420369-1749
Sveitarstjóri sveitarstjori(hja)langanesbyggd.is