Stjórnsýsla
Stafgöngunámskeið á Bakkafirði á laugardaginn
Fyrsta námskeiðið í Langanesbyggð er námskeið í stafgöngu sem verður haldið á Bakkafirði næsta laugardag, þann 11. september. Kennt verður frá kl. 10:30 - 12:00 og 13:00 - 14:30. Skráning í síma 464-5100 eða á netfangið hac@hac.is. Þátttökugjald er 6.500 kr.
Stafganga er góð leið til heilsubótar og hana er hægt að stunda hvar sem er og hvenær sem er óháð veðri, aldri, kyni eða líkamlegu ástandi. Hægt verður að fá stafi á staðnum. Leiðbeinandi er Sigurbjörg Árnadóttir. Mæting við Grunnskóla Bakkafjarðar.
Mikil umsvif á Þórshöfn
Það voru mikil umsvif, sól og hiti við höfnina á Þórshöfn í gær þegar meðfylgjandi mynd var tekin. Þrjú af fimm skipum Ísfélagsins lágu við bryggjuna, þau Júpíter, Guðmundur og Álsey. Búið var að vinna upp úr Júpíter, verið að skipa upp úr Álsey til vinnslu og fyrir lá að skipa upp úr Guðmundi frystum afurðum. Þarna var einnig línuveiðiskipi frá Rifi, Örvar sem hefur landað ferskum fiski á Þórshöfn undanfarið. Hluti aflans hefur farið vestur en hluti á markað á Þórshöfn. Erlent flutningaskip lá líka við bryggju að taka við frystum afurðum sem koma frá Raufarhöfn og Siglufirði auk Þórshafnar og sigla með þær til Póllands.Að sögn Siggeirs Stefánssonarframleiðslustjóra hjá Ísfélaginu hefur verið unnið á vöktum allan sólarhringinn frá því upp úr miðjum júlí. "Þetta gengur bara vel" sagði Siggeir glaðbeittur í sólskininu um leið og hann sneri inn í hringiðu lyftara, flutningabíla, skipa og vinnandi fólks. Smábátarnir spegluðu sig sallarólegir í sléttum voginum þangað til óvæntur gestur vildi fá að vera með og ruglaði myndina. Sjáið fleiri myndir hér.
Göngur hefjast um helgina
Réttað verður í Ósrétt (Sauðanesrétt) fimmtudaginn 9. september og daginn eftir í Hallgilsstaðarétt eða föstudaginn 10. september.
Þriðjudaginn 14. september verður réttað í Tunguselsrétt.
Bókasafnið á Þórshöfn opnað
Safnagestir eru beðnir að skila sem fyrst bókum sem þeir fengu lánaðar fyrir sumarfrí. Sem fyrr er ekkert árgjald fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri og eru allir hvattir til að koma við í bókasafninu sem er vel staðsett á efri hæð íþróttamiðstöðvarinnar.
Bókavörður er Líney Sigurðardóttir.
Síðsumarganga Norðurslóðar
Ferðafélagið Norðurslóð var stofnað á síðasta ári og er félagssvæði þess frá Kelduhverfi í vestri að Bakkafirði í austri. Félagið hefur staðið fyrir nokkrum vel heppnuðum göngum á félagssvæðinu í sumar. Nú er komið að næstu göngu Ferðafélagsins Norðurslóðar. Hún verður farin næstkomandi laugardag, þann 4. september og litið á Jökulsá og Jökulsárgljúfur að austan. Gengið verður frá Vestaralandi í Öxarfirði upp með Jökulsá, að Gloppu. Mæting við Vestaraland kl. 13:00.
Þetta verður létt og skemmtileg fjölskylduganga um fáfarnar slóðir í undurfallegu ævintýraumhverfi Jökulsárgljúfra. Fólk er beðið að taka með sér nesti og góða skó. Veðurspáin er afar góð og vonast er eftir góðri þátttöku.
Blakæfingar á Þórshöfn
Þetta er skemmtileg íþrótt og góð hreyfing í góðum félagsskap. Fólk er hvatt til að nýta hina ágætu aðstöðu í íþróttamiðstöðinni Veri, til dæmis með því að mæta á blakæfingu og slá í gegn.
Lausar stöður við Grunnskóla Þórshafnar
Skólaliða vantar við Grunnskóla Þórshafnar sem fyrst. Um tvö stöðugildi er að ræða, annað 60% og hitt 75%. Helstu verkefni skólaliða eru þrif á skólahúsnæðinu og frímínútnagæsla.
Nánari upplýsingar veitir Arnfríður Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma 468-1164 / 899-3480 eða í tölvupósti á netfangið skolastjori@langanesbyggd.is.
Umsóknum skal skila á skrifstofu skólastjóra eða á netfangið skolastjori@langanesbyggd.is .
Hlé gert á æfingum í september
Starfsemi Ungmennafélags Langnesinga hefur verið lífleg í sumar, æfingar og mótaþátttaka í frjálsum og fótbolta í fullum gangi, góð þátttaka og góður árangur hjá félaginu. Nú verður tekið frí frá æfingum og íþróttastarfi í september. Áætlað er að birta æfingatöflu og byrja vetrarstarfið í byrjun október.Fundur í sveitarstjórn Langanesbyggðar
Haldinn verður fundur í sveitarstjórn Langanesbyggðar fimmtudaginn 2. september n.k. kl. 17:00 í félagsheimilinu Þórsveri.DAGSKRÁ:
1. Fundargerð sveitarstjórnar dags. 19.08.2010
2. Fundargerð sveitarstjórnar (aukafundur) dags. 23.08.2010
3. Fundargerð atvinnu-, menningar - og ferðamálanefndar dags. 23.08.2010
4. Fundargerð húsnæðisnefndar dags. 23.08.2010
5. Fundargerð landbúnaðarnefndar dags. 23.08.2010
6. Fundargerð landbúnaðarnefnd dags. 18.08.2010
7. Fundagerð USB dags. 20.08.2010
8. Skýrsla sveitarstjóra.
9. Umsókn um styrk.
10. Tilnefning í stjórn Fræs ehf.
11. Erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga dags. 27.08.2010
Þórshöfn 30. ágúst 2010,
Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri
Á markað með snjöll nýsköpunarverkefni?
Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
Markmið verkefnisins:
· Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
· Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum.
Í umsókn þarf að koma fram:
· Skýr lýsing á verkefninu í heild og ætluðum árangri þess
· Greining á nýnæmi verkefnisins
· Greinargóðar kostnaðar- og verkáætlanir
· Ýtarleg lýsing á þeim verkþáttum sem sótt er um styrk til, s.s. þróunarvinnu og markaðsstarfs
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og búnaði.
Rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is. Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið tinna@nmi.is. Umsóknarfrestur er til og með 21. september n.k.
Skólasetning Framhaldsskólans á Laugum
Það frumkvöðlastarf sem unnið var með Þekkingarneti Þingeyinga s.l. ár gaf góða raun og hefur aðsókn í nám á framhalds- og háskólastigi stóraukist. Það er því mikið gleðiefni hve samfélagið nýtir vel þann möguleika að stunda nám sitt í heimabyggð. Ljóst er að verkefnið í heild sinni hefur verið borið áfram á jákvæðni, hvatningu og samheldni en án þessara þátta væri þróun þess óframkvæmanleg.
Nú hefjum við nýtt skólaár full eftirvæntingar og eru nemendur Framhaldsskóladeildarinnar hvattir til að fylgjast með helstu upplýsingum á tölvupósti. Verkefnisstjóri er eins og áður Anna Þorsteinsdóttir.
Nýr sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis
Um síðustu mánaðamót tók Íris Björnsdóttir við stöðu sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis af Guðna Haukssyni. Íris er fædd og uppalin í Hveragerði, viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og með meistaragráðu í bankastarfsemi og fjármálum frá Luxembourg School of Finance. Íris flytur ásamt fjölskyldu sinni frá Luxembourg hingað á Þórshöfn. Þau fengu einmitt gáminn sinn heim að dyrum í dag.
Íris og fjölskylda hennar eru boðin velkomin á Þórshöfn um leið og Guðna og fjölskyldu er óskað velgengni í framtíðinni.
Skólasetning Grunnskólans á Bakkafirði
Grunnskólinn á Bakkafirði verður settur mánudaginn 30. ágúst klukkan 17:00. Æskilegt er að foreldrar komi með börnum sínum, segi í bréfi frá skólanum.Eftir skólasetninguna fara nemendur svo með kennurum í sínar stofur og fá afhentar bækur og stundatöflur.
Á meðan munu foreldrar ræða um foreldrafélagið og það starf sem unnið verður í vetur.
Þriðjudaginn 31. ágúst hefst kennsla klukkan 10:00 samkvæmt stundaskrá.
Þekkingarnet Þingeyinga - Menntasetrið á Þórshöfn
Nú hefur nafni Þekkingarseturs Þingeyinga verið breytt í Þekkingarnet Þingeyinga. Þetta nýja heiti endurspeglar starfsemi stofnunarinnar betur en hið eldra. Stofnunin Þekkingarnet Þingeyinga er eiginlegt netverk því hún starfar á svæðisvísu í stóru og dreifbýlu héraði en ekki í einu „setri“ á föstum punkti.Áfram verður talað um Þekkingarsetrið á Húsavík þegar rætt er um þekkingarstarfsemina í heild á Hafnarstéttinni á Húsavík. Að sama skapi um Menntasetrið á Þórshöfn þegar talað er um mennta- og fræðsluklasann á Þórshöfn. Ekki er loku fyrir það skotið að Þingeyingar geti í framtíðinni myndað fleiri slík þekkingarsetur innan starfssvæðisins.
Nú í ágústmánuði hóf Heiðrún Óladóttir störf fyrir Þekkingarnetið í Menntasetrinu á Þórshöfn. Hún leysir af Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur sem er í fæðingarorlofi. Heiðrún er í hlutastarfi hjá Þekkingarnetinu og starfar fyrst og fremst á símenntunarsviði. Hún hvetur alla sem hafa hug á námi eða vilja fá leiðbeiningar og ráðgjöf um nám að hafa samband í síma 464-5142 eða netfangið heidrun@hac.is. Einnig er óhætt að koma við í Menntasetrinu sem er staðsett í félagsheimilinu, gengið inn frá grunnskólaplaninu.
Verslunardagur á Þórshöfn
Næstkomandi föstudag, þann 27. ágúst verður sannkallaður verslunardagur á Þórshöfn. Verslunar- og þjónustuaðilar hafa tekið sig saman um að bjóða afslætti og góð tilboð sem gaman verður að líta á. Þórshafnarbúar og nágrannar kíkja í verslanir og sérstaklega ættu nágrannar vestan Melrakkasléttu að renna yfir Hólaheiðina, líta á nýja veginn og útsýnið af honum og kíkja á góð tilboð á Þórshöfn.Einhvers konar markaður mun líklega spretta upp í miðbænum og eru söluaðilar handverks, matvæla og listmuna hvattir til að koma vöru sinni á framfæri.
Ber, gæs og gisting er líka í boði og veðurspáin er fín. Símanúmer hjá gistiaðilum er hér fyrir neðan. - Sjáumst á Þórshöfn!
Þessi fyrirtæki og stofnanir taka þátt:
FÁNASMIÐJAN s. 577-2020. Opið til kl. 18:00. 30% afsláttur af öllum fatamerkingum. Flottar hettupeysur, bolir og sundpokar í skólann.
Veitingastaðurinn EYRIN s. 468-1250. Opið kl. 11:30 - 22:00. Pizzutilboð í sal.
GRILLSKÁLINN s. 468-1174. Opið kl. 9:00 - 21:30. Hamborgaratilboð.
SAMKAUP s. 468-1100. Oið kl. 9:30 - 18:00. Fullt af flottum tilboðum í gangi.
LYFJA s. 464-0609. Opið kl. 9:00 - 16:00. Ýmis góð tilboð.
SUNDLAUGIN s. 468-1515. Opið kl. 8:00 - 20:00. 50% afláttur í sund.
STÚDÍÓ SÓL Í SUNNUVEGI s. 862-8864. Stakur tími kr. 600, föstudag og laugardag.
ÁTVR. Opið kl. 14:00 - 18:00.
Gistiaðilar:
Farfuglaheimilið Ytra-Lóni á Langanesi, s. 468-1242.
Gistiheimilið Lyngholt á Þórshöfn, s. 897-5064.
Ferðaþjónusta bænda, Ytra-Álandi í Þistilfirði, s. 468-1290.
Starfskraftur í ræstingar á Nausti
Starfskraftur óskast nú þegar í ræstingar á Dvalarheimilið Naust á Þórshöfn. Um er að ræða tímabundna ráðningu, þarf að geta hafið störf strax. Vinnutími er frá 9:00 - 14:00.Nánari upplýsingar veita Hrefna og Aldís í síma 468-1322 virka daga milli 8:00 og 16:00. Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu Langanesbyggðar.
Laust starf í eldhúsi
Langanesbyggd óskar að ráða starfsmann í eldhús í íþróttamiðstöð Þórshafnar þar sem eldað er fyrir leikskóla og grunnskóla Þórshafnar. Um er að ræða fullt starf fram að áramótumNánari upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 468-1220 eða á netfangið sveitarstjori@langanesbyggd.is.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 30. ágúst á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn.
Altarisdúkur gefinn í Skeggjastaðakirkju
Messað var í Skeggjastaðakirkju sunnudaginn 15. ágúst sl. Í messunni var vígður nýr altarisdúkur, gefinn af Júlíu Friðriksdóttur frá Felli sem nú er búsett á Akureyri. Dúkurinn er gefinn til minningar um foreldra hennar Friðrik Oddsson og Helgu Sigurðardóttur sem bjuggu á Felli, auk systkina hennar og tengdaforeldra, Haralds Guðmundssonar og Þórunnar Þórarinsdóttur er bjuggu á Þorvaldstöðum, og barna þeirra. Dúkinn vann Júlía síðastliðinn vetur og er hann saumaður með harðangri og klaustri.
Þetta var um leið kveðjumessa Sbigniew Zuchowicz organista en hann hverfur nú til annarra starfa og verður organisti í Digraneskirkju í Kópavogi næsta árið. Zbigniew hefur verið organisti í Skeggjastaðakirkju í 17 ár og í prestakallinu öllu nokkur síðustu árin. Hann hefur ásamt konu sinni Theresu og börnum staðið fyrir tónlistarsköpun í kirkjunum undanfarin ár. Verður þeirra sárt saknað. Sóknarbörnin óska þeim góðs gengis á nýjum starfsvettvangi og þakka fyrir mjög góð störf.
Eftir messuna var kirkjugestum boðið í súpu í skólanum á Bakkafirði þar sem Zbigniew og Teresa léku fyrir gesti. Fleiri myndir í myndasafni.
Texti og myndir: Áki Guðmundsson og Brynhildur Óladóttir
Skólasetning Grunnskólans á Þórshöfn
Óvenju margir nýir kennarar koma til starfa við Grunnskólann á Þórshöfn nú í haust. Arnfríður Aðalsteinsdóttir tekur við af Heiðrúnu Óladóttur sem skólastjóri en aðrir nýir kennarar eru:
nánar
Umferð leyfð um Hólaheiði
Nú er sá dagur runninn upp að umferð er leyfð um Hólaheiði, milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar. Frágangur við veginn stendur enn yfir og því eru hraðatakamarkanir og steinkast á nokkrum köflum. Sama gildir um Raufarhafnarlegginn, hann er opinn en með hraðatakmörkun. Verið er að ganga frá köntum, setja upp handrið, stikur, merkingar og fleira. Fólk er beðið að sýna tillitssemi og virða hámarkshraða á veginum.Hin nýja leið yfir Hófaskarð og um Hólaheiði skiptir miklu máli fyrir íbúa austan Melrakkasléttu og svæðið allt. Leiðin milli Þórshafnar og Húsavíkur styttist um 53 kílómetra, en ekki nóg með það því aflagðir eru vondir vegir með brekkum, beygjum, einbreiðum brúm, bleytu, holum, þvottabretti og öðru torleiði.
Það er sannarlega fagnaðarefni að geta nú sagt eins og fleiri: Þórshöfn, malbik alla leið!
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 næsta síða
Viðburðadagatal
|
Fundargerðir |
||
Fundarg. Langanesb. 2010
|
||








